Opin svæði, fólkvangar og útivistarsvæði.Á árinu 2006 er stefnt að áframhaldandi vinnu við uppbyggingu opinna svæða og gönguleiða. Stefnt er að reglubundnu viðhaldi stíga, garðbekkja, gróðurbeða, malarsvæða, leiksvæða og grasflata. Þá er jafnframt stefnt að áframhaldandi fegrun þéttbýlissvæða í sveitarfélaginu. Lögð verður áhersla á; aðkomuna inn á Hvammstanga og Laugarbakka, umhverfi Hvammstangabrautar og skrúðgarðinn við Félagsheimilið á Hvammstanga. Auk þessara svæða verður unnið víðsvegar að smærri og stærri verkefnum, s.s. gróðursetningu trjáplantna og skjólgarða við þéttbýlisstaði, til að mynda skjól fyrir íbúa, hindra snjósöfnun á götum og auka fjölbreytni á útivistarmöguleikum og íþróttaiðkun. Þá verði fundinn staður til að stunda skautaíþróttir í þéttbýlinu og umhverfi þess staðar gert eins hentugt og aðlaðandi og mögulegt er í samræmi verkefnalista staðardagskrá 21 fyrir Húnaþing vestra.
-
Tjaldsvæðið Kirkjuhvammi og leiksvæði.Unnið verði áfram við uppbyggingu skjólbelta við tjaldsvæðið samkvæmt samningi við umsjónaraðila þess. Þá er stefnt að endurbótum á umhverfi bílastæða við þjónustuhús og salernisaðstöðu sem og fjölgun leiktækja úr ,,náttúrulegum” hráefnum s.s. trjádrumbum og grjóti.

Malarsvæði og girðingar á leiksvæðunum við Mánagötu og Gilsbakka verði viðhaldið og leitast við að hafa svæðin eins snyrtileg og aðstæður leyfa. Á þessum svæðum verður lög áhersla á notkun ímyndunaraflsins, en sett verða upp skilti þar sem nokkrir gamlir og góðir leikir eru útskýrðir, s.s. brennibolti og fallin spýta. Stefnt er að því að svæðin verði þannig úr garði gerð að þau henti undir þessa leiki.

Staðardagskrá 21. Settur verði saman hópur / nefnd til að halda utan um staðardagskrástarfið og fylgja verkefnum eftir. Þá verði staðardagskrá 21 í Húnaþingi vestra og einstök verkefni kynnt fyrir íbúum. Nú eru nokkur af verkefnum staðardagskráar í gangi en stefnt er að úrlausn tólf verkefna á næsta ári.

Endurvinnsla. Unnið verði að betra skipulagi varðandi söfnun blaða og ferna í sveitarfélaginu. Nokkrum sinnum hafa söfnunarkörin fyllst en gífurlegt magn blaða og ferna hefur verið sent í endurvinnslu héðan á síðasta ári. Gera má ráð fyrir einhverjum kostnaði varðandi nýja endurvinnsluflokka og undirbúnings fyrir miðlæga jarðgerð hjá sveitarfélaginu sem stefnt er að árið 2007 samkvæmt staðardagskrá 21. Jafnframt er stefnt að auknum áróðri og kynningarefni varðandi umhverfisvæn innkaup og endurvinnslu hjá heimilum, stofnunum og fyrirtækjum.

Sorphirða og urðun. Kostnaður vegna þessa málaflokks er sífellt að aukast. Fyrir utan samningsbundnar vísitöluhækkanir hefur þjónusta líka verið að aukast í formi aukinnar losunar. Þar er helst að nefna aukaferðir sem farnar voru í sumar til að tæma gáma í sveitum sem og tíðari losun úrgangs á gámasvæði Hvammstangahafnar. Þess ber þó að geta að annars staðar hefur verið dregið saman í tíðni gámalosunar s.s. á Vatnsnesi yfir vetrartímann. Að öðru leiti hefur tæknideild gætt eins mikils aðhalds í sorphirðu og hægt er. Aukning á kostnaði vegna sorphirðu og urðunar má rekja til þriggja megin breytna;
1. Samningsbundnar vísitöluhækkanir2. Aukning á úrgangsmagni frá heimilum, stofnunum og fyrirtækjum.3. Strangari lagarammi frá Alþingi og auknar kröfur frá Umhverfisstofnun varðandi meðhöndlun úrgangs, urðun og endurvinnslu.

Helsta aðferðin til að draga úr þessari þróun er að leggja áherslu á áróður og kynningarefni varðandi umhverfisvæn innkaup heimila, stofnana og fyrirtækja. Þá má gera ráð fyrir að Úrvinnslusjóður komi með auknum hætti inn í feril söfnunar og endurvinnslu með þátttöku í kostnaði sveitarfélagsins vegna þessa málaflokks. Í bókhaldslykli vegna sorphirðu og urðunar má gera ráð fyrir kostnaði vegna uppbyggingar og viðhalds í Grænulaut á Syðri-Kárastöðum og á gámasvæði sveitarfélagsins á Hvammstangahöfn.Nýbygging og framkvæmdir árið 2006
Uppsetning ljósa meðfram stígum í Bangsatúni á Hvammstanga. Þegar skrúðgarðurinn við Félagsheimilið var teiknaður árið 1991 var gert ráð fyrir lýsingu meðfram stígunum. Tilgangur lýsingarinnar er sá sami og við aðrar umferðarleiðir, þ.e.a.s. að stuðla að öryggi íbúa. Þegar horft er yfir skrúðgarðinn í vetrarhúminu sést að helmingur garðsins (Bangsatún) er myrkvaður og meira skjólhús fyrir myrkraverk heldur en til gönguferða. Meðfylgjandi er tillaga umhverfis- og garðyrkjustjóra að lýsingarbúnaði sem þjónar öryggishlutverki sínu, stuðlar að aukinni notkun göngustígana og fegrar umhverfi skrúðgarðsins.
Uppbyggingu á torgi / listaverki í sveitarfélaginu. Listaverkið við Félagsheimilið á Hvammstanga er ónýtt og ekki er hægt að gera við það nema með töluverðum kostnaði. Hugmynd um að endursmíða það úr varanlegum efnivið t.d. úr ryðfríu efni gæti kostað nálægt einni miljón króna samkvæmt upplýsingum sem fengnar voru frá blikksmiðjum þegar kostnaður vegna viðgerðar styttunnar var kannaður síðastliðið vor. Umhverfis- og garðyrkjustjóri óskar eftir heimild til að endurskipuleggja og eða breyta listaverkinu og umhverfi þess. Megintilgangur með þeirri endurskipulagningu yrði eftirfarandi: 1. Að þegar horft væri inn í skrúðgarðinn verði ásýnd listaverksins sem glæsilegust, jafnt á björtum sumardegi sem og í kvöld- og nætur myrkrinu. Í því sambandi má nefna notkun rennandi vatns og viðeigandi lýsingar. 2. Að listaverkið laði til sín unga sem aldna og myndi umgjörð fyrir samveru íbúa sveitarfélagsins sem og gesta í frístundum og á hátíðisstundum. 3. Að listaverkið verði kjarninn í sköpun bæjartorgs þar sem ólík starfsemi og frístundaiðkun ætti sér stað. Hugmyndin er að hellu- eða flísaleggja svæðið þar sem styttan stendur nú. Þá yrði notað vatn til að laða að nærveru fólks og efla samveru þess og um leið fegra skrúðgarðinn. Svæðið yrði með þeim hætti að ,,stéttin” lægi örlítið neðar en nærumhverfið þannig að hægt verði að halda utan um vatnið og mynda skautasvell þegar frystir. Of langt mál væri að fara út í nákvæmar útskýringar en í stað þess eru eftirfarandi myndir látnar gefa hugmynd um framtíðarskipulag svæðisins.
Listaverkið verði miðkjarni í sköpun bæjartorgs þar sem ólík starfsemi og frístundaiðkun ætti sér stað. Ásýnd listaverksins verði sem glæsilegust, jafnt á björtum sumardegi sem og í kvöld- og næturmyrkrinu. Í því sambandi má nefna notkun rennandi vatns og viðeigandi lýsingar. Rennandi vatn og litlir gosbrunnar laða að sér unga sem aldna í öllum löndum og bjóða upp á ýmiskonar möguleika. Á bæjartorgum fer ýmislegt fram s.s. afhjúpun jólatrjáa. Lóð Félagsheimilisins á Hvammstanga hefur lengi þjónað hlutverki bæjartorgs á slíkum hátíðisdögum. Gosbrunnar geta þjónað mörgum hlutverkum, hér hefur t.d. verið brugðið á það ráð að skrúfa fyrir vatnið og keppa á línuskautum. Það þarf ekki stórt svæði undir iðkun af ýmsu tagi, s.s. fyrir skauta- og hjólaiðkun. Við Félagsheimilið hefur undanfarin ár borið nokkuð á notkun hjólabretta og línuskauta á hellulögðum svæðum. Hin stóra bygging myndar kjörið skjól til útiveru þó eitthvað blási veðurguðirnir. Svæðin þurfa ekki að vera stór til að vera aðlaðandi. Uppbygging á torgi / listaverki í sveitarfélaginu. Þær eru ólíkar hugmyndirnar sem fólk hefur um fallegt og ákjósanlegt umhverfi. Það er hins vegar hægt að fullyrða að umhverfi sem stuðlar að samveru fólks sé ómetanleg mikils virði fyrir sveitarfélagið íbúa þess og gesti. Undirritaður óskar hér með eftir heimild til að útfæra þessa hugmynd. Sú vinna yrði unnin í samstarfi við aðra starfsmenn sveitarfélagsins og fagaðila á öðrum sviðum. Afrakstur þeirrar vinnu og framkvæmdaáætlun yrði lögð fyrir sveitarstjórn á vormánuðum 2006 þannig að framkvæmdir gætu hafist þá um sumarið.
Virðingarfyllst
Arnar Birgir Ólafsson

Umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings vestra
Engin ummæli:
Skrifa ummæli