03 desember 2005

Upplestur á bókasafninu

-
Mikið var um að vera á bóka- og skjalasafni Húnaþings vestra í dag. Eyrún Ingadóttir kom og las upp úr bók sinni Ríkey ráðagóða og jafnframt upp úr bókinni Sagnamaðurinn Örn Clausen sem hún skráði.
-
Eyrún Ingadóttir að lesa upp úr bók sinni
-
Gudrun Kloes kynnti matreiðslubók sem dóttir hennar, Maike Hanneck, samdi og Gudrun gefur út. Einnig komu fram nokkrir tónlistarmenn á öllum aldri og léku á ýmis hljóðfæri. Þá söng Sigrún Pétursdóttir lög við undirleik Guðmundar Helgasonar.
-

Dagur Smári spilaði á gítar en Ella Jóna, móðir hans, aðstoðaði tónlistarmanninn við nótnalesturinn
Sigríður Tryggvadóttir bóka- og skjalavörður Húnaþings vestra í hátíðarskapi

Að sögn Sigríðar var þetta hin ánægjulegasta samverustund og þónokkuð vel sótt.

Engin ummæli: