28 nóvember 2005

Jólatré sett upp við Félagsheimilið

-
Þessa dagana eru starfsmenn áhaldahúss önnum kafnir við að undirbúa jólin. Búið er að setja ljósaskreytingu upp á vatnstankinn fyrir ofan Hvammstanga og fljótlega verða ljósastaurar þéttbýlisstaðanna skreyttir. Í dag var hins vegar jólatré sveitarfélagsins sett upp við Félagsheimilið á Hvammstanga.
-
Starfsmenn áhaldahúss við uppsetningu jólatrésins

Síðar verður auglýst hvenær ljósin á trénu verða kveikt en þess má geta að þetta fallega rauðgreni kemur hingað frá Vaglaskógi.
-

Engin ummæli: