-
Í samstarfi við Endurvinnsluna á Akureyri mun HH Gámaþjónusta sækja rúlluplast í desember til þeirra bænda sem þess óska. Þessi bætta þjónusta er til þess fallin að auðvelda bændum meðhöndlun og frágang plastsins í samræmi við kröfur Endurvinnslunnar.
-
Heyrúllur fyrir sunnan Hvammstanga á fallegum en köldum degi. Gífurlegt magn heyrúlluplasts fellur til í sveitarfélaginu en um 60 tonnum er safnað saman árlega frá bændum-
Þeir aðilar sem hafa hug á að þiggja þessa þjónustu eru beðnir að hafa samband við Hrannar í síma 895-2052 eða með tölvupósti í netfangið hrannarharalds@simnet.is, eigi síðar en 1. desember n.k.
Þeir aðilar sem hafa hug á að þiggja þessa þjónustu eru beðnir að hafa samband við Hrannar í síma 895-2052 eða með tölvupósti í netfangið hrannarharalds@simnet.is, eigi síðar en 1. desember n.k.
-
Ganga skal frá heyrúlluplastinu böggluðu. Það er hægt að gera með því að nota kassa eins og sýndur er hér að neðan. Þeir sem hafa nú þegar gengið frá plasti sínu á annan hátt, t.a.m. í áburðarsekki/fóðursekki geta þó losnað við þá í þessari losun.

Hæfilega stór kassi er um 90 sm á lengd, 50 sm á breidd og 50 sm á hæð. Hægt er að nota ýmsan efnivið í kassann og fyrir flesta er fljótgert að setja hann saman. Sett eru bönd ofan í kassann, plastinu þjappað eftir bestu getu og síðan bundið fyrir
Kröfur frá Endurvinnslunni hf. eru eftirfarandi; engir aðskotahlutir mega vera í plastinu sem torvelda endurvinnslu s.s. hey, net og bönd. Losun á hverjum bæ skal taka sem skemmstan tíma, því er mikilvægt að frágangur og aðkoma sé góð. NÝTT!!! Allt plast verði bögglað (án áburðasekkja/fóðursekkja) eftir komandi losun. Sorphirðuaðili er í umboði Endurvinnslunnar og því gert að hafa umsjón með að reglum um frágang og söfnun sé fylgt.
Fh. HH Gámaþjónustunnar, Hrannar B. Haraldsson
-
-
Engin ummæli:
Skrifa ummæli