10 nóvember 2005

Hafnarframkvæmdir hafnar


Tveir smiðir ehf. hafa undanfarna daga verið við störf á hafnarsvæði Hvammstanga. Þar er verið að endurnýja vestasta og jafnframt elsta hluta suðurbryggjunnar en framkvæmdir hafa gengið vel þrátt fyrir kalda vetrartíð.

Kári Bragason mundar hér vélsögina af mikilli kostgæfni á framkvæmdasvæðinu.
Séð yfir Hvammstangahöfn. Hér er búið að festa hluta nýja burðarvirkisins við gömlu staurana.
Tveir smiðir, Einar Jónsson húsasmíðameistari (t.v.) og Þorvaldur Björnsson þúsundþjalasmiður (t.h.).

Að sögn Kára Bragasonar hjá tveimur smiður ehf. er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í desember nk. Það var Eyþór Eðvaldsson fréttaritari Umhverfisfrétta sem tók pistilinn saman.





Engin ummæli: