08 nóvember 2005

Launakjör - Staðardagskrá

Nýlega var kynnt könnun á launakjörum starfsmanna Húnaþings vestra. Þessi könnun var gerð í samræmi við samþykkta staðardagskrá Húnaþings vestra og jafnréttisáætlun sveitarfélagsins. Samkvæmt könnuninni er verulegur launamunur milli kynja og hefur hann aukist frá könnun sem gerð var árið 2002. Mun fleiri konur vinna hinsvegar hjá sveitarfélaginu en karlar. Hlutfall í stjórnunarstöðum er þó svipað en þar eru konurnar einni fleiri.
-
Gömul mynd úr Húnaþingi vestra. Ætli hér sé verið að ræða misjöfn kjör karla og kvenna?
-
Jafnréttisáætlun Húnaþings vestra var samþykkt í sveitarstjórn í júní árið 2000. Þar segir m.a. að við starfsráðningar, skipan í nefndir, ráð og starfshópa á vegum sveitarfélagsins skuli staða kynjanna vera jöfn og í öllu fylgja jafnréttislögum. Þá skuli jafnréttisnefnd veita íbúum Húnaþings vestra liðveislu í jafnréttismálum, sé eftir því leitað. Í jafnréttisáætlun segir einnig að sveitarstjórn skuli ár hvert gera samanburð á heildarkjörum karla og kvenna er starfa hjá sveitarfélaginu.
-
Í fundargerð félagsmálaráðs Húnaþings vestra frá 3. nóvember sl. skorar Jafnréttisnefnd á sveitarstjórn að beita sér fyrir jöfnun launa milli kynja og líta sérstaklega til aukagreiðslna í því sambandi.
-
Könnunin var unnin í október 2005 en tölurnar eru frá í maí 2005. Helena Halldórsdóttir, launadeild Húnaþings vestra, sá um söfnun upplýsinga um launagreiðslur en Ólafía Ingólfsdóttir, starfsmaður Félagsþjónustunnar sá um úrvinnslu. Launakönnunin verður birt hér á heimasíðunni innan skamms.
-
Með þessari könnun er verkefni SV02-3 í Staðardagskrá Húnaþings vestra lokið.

Engin ummæli: