-
Veður í Húnaþingi hefur verið með versta móti síðustu tímana en um kvöldmatarleytið í gær skall á óveður með hálku, éljagangi og snjókomu. Björgunarsveitir í Húnavatnssýslum voru kallaðar út til að hjálpa fólki sem fast var í bílum sínum á leiðinni frá afleggjara að Laugabakka á þjóðvegi 1 og austur í Víðidal. Verst var ástandið á leiðinni frá Laugabakka að Hvammstanga. Þar voru yfir hundrað manns sótt í 30 bíla.
-
Bíll Ritstjóra Umhverfisfrétta fór illa í nótt þegar afturrúðan sprakk í veðurofsanum -
Öllu skólahaldi í Húnaþingi vestra var aflýst í dag og ennþá er veðrið mjög slæmt og vegir við Laugarbakka og Hvammstanga ófærir. Veðurstofan spáir norðan 13-20 m/s og snjókomu eða skafrenningi á næsta sólarhring með vægu frosti.
-Öllu skólahaldi í Húnaþingi vestra var aflýst í dag og ennþá er veðrið mjög slæmt og vegir við Laugarbakka og Hvammstanga ófærir. Veðurstofan spáir norðan 13-20 m/s og snjókomu eða skafrenningi á næsta sólarhring með vægu frosti.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli