18 október 2005

Nýtt hús á Hvammstanga

-
dag voru starfsmenn Rarik á Hvammstanga að koma fyrir nýrri spennistöð í bænum. Gamla spennistöðin sem staðið hefur í skrúðgarði bæjarins er úr sér gengin og því kominn tími á gagngerar endurbætur. Gamla húsið verður væntanlega rifið innan fárra vikna þegar búið verður að tengja nýju spennistöðina.
-
Ný spennistöð sett niður við Lækjargötu á Hvammstanga. Pétur Daníelsson, Átvaldur Benediktsson og Flosi Eiríksson verktakar aðstoðuðu Rarikmenn við að koma húsinu á réttan stað
-

Hér sjást þeir Eyþór Eðvaldsson rafvirkjameistari og Flosi Eiríksson jarðvinnuverktaki koma nýju spennistöðinni listilega fyrir á nýsteyptan grunninn

Þá er ekkert eftir en að húkka köðlunum úr króknum. Spennistöðin komin í örugga höfn. Í bakgrunni sést eldri stöðinn sem brátt heyrir sögunni til


Það voru frændur okkar í Noregi sem smíðuðu nýju spennistöðina en nú eru þrjár stöðvar af þessari tegund á Hvammstanga. Þessi bygging verður þó ólík kynsystrum sínum að því leyti að risþak verður sett á hana til að gera hana betri út frá fagurfræðilegum sjónarmiðum. Það var fréttaritari Umhverfisfrétta, Harpa Vilbertsdóttir, sem tók myndirnar.
-

Engin ummæli: