27 október 2005

Lífræn vottun fyrir kaupfélagið

-
Sláturhús og kjötvinnsla Kaupfélags Vestur Húnvetninga hefur nú fengið alþjóðlega vottun Vottunarstofunnar Túns til vinnslu á lífrænum hráefnum. Vottunin felur í sér að KVH getur tekið við lífrænu sauðfé til slátrunar, unnið úr því ýmsar kjötvörur og sérmerkt þær fyrir lífræna matvörumarkaðinn. Með því er rofið meira en tveggja ára tímabil frá því að bændur í lífrænni sauðfjárrækt gátu síðast selt afurðir sínar sem lífrænar.
- Fjárrekstur að Hamarsrétt á Vatnsnesi
-
Lífræn sauðfjárrækt er nú stunduð á 5 bæjum hérlendis. Bændur á þessum vottuðum bæjum ala sauðfé sitt eingöngu á lífrænu fóðri og beita því á vottað graslendi eða villta fjallhaga. Lyfjanotkun er innan þröngra marka og hugað er sérstaklega að velferð sauðfjársins á fóðrunar- og fengitíma að vetrum, þ.e. nægu húsrými, undirburði og útivist. Brekkulækur í Miðfirði er einn þessara fimm bæja.
-

Engin ummæli: