04 október 2005

Framkvæmdir við Fífusund á Hvammstanga.

-
Það er alltaf gaman að fylgjast með þegar ungir og atorkusamir menn vinna að framkvæmdum við hús sín. Einn þessara manna er Guðmundur Erlendsson sem var í óða önn að steypa upp vegg þegar ritstjóri Umhverfisfrétta átti leið um Fífusund í dag.
-
Guðmundur stýrir hér steypunni í mótin með aðstoð Péturs Arnarsonar og Eggerts Karlssonar
-
Það verður spennandi að fylgjast með afrakstri þessarar vinnu en verið er að byggja við bílskúrinn og tengja hann við íbúðarhúsið að Fífusundi 8. Verkið er teiknað af Málfríði Kristjánsdóttur arkitekt.
-

Engin ummæli: