27 september 2005

Tré falla í Húnaþingi


Ekki hefur blásið byrlega fyrir íbúa Norðurlands vestra síðustu daga. Svo mikil var reiði Kára í nótt að tré rifnuðu upp með rótum. Slíkt gerðist m.a. við Lækjargötu 3 á Hvammstanga þar sem hjónin Laura Ann Howser og Gunnar Leifsson búa. Tréð sem féll í garði þeirra hét Tumi og hafði verið í miklu uppáhaldi drengjanna á heimilinu um nokkurt skeið.


Það er ekkert grín að vera rifinn upp með rótum. Hið virðulega tré, Tumi, liggur hér í valnum upp við bakka Syðri-Hvammsár og má muna sinn fífil fegurri.

Við nánari skoðun á rótarkerfinu kom í ljós að það var orðið mjög veikt enda tréð komið til ára sinna. Tumi var laukur af Víðisættinni en sú fjölskylda er þekkt fyrir lélegt rótarkerfi miðað við umfang stofns og trjákrónu. Ekki var hægt að yfirgefa Lækjargötu 3 án þess að koma við hjá G.L. Bólstrun sem er þar til húsa enda kærkomið að leita skjóls undan storminum.

Gunnar Leifsson hjá G.L. Bólstrun tók vel á móti fréttaritara og sagði honum frá starfsemi fyrirtækisins sem hefur verið með miklum ágætum.


Nú er bara að vona að fleiri tré falli ekki í storminum en búist er við áframhaldandi blæstri og sperringi næsta sólarhringinn með einhverri úrkomu og hitastigi rétt yfir frostmarki.

Engin ummæli: