02 ágúst 2005

Veraldarvinir á förum.

-
Margir hafa orðið varir við nærveru sjálfboðaliðasamtakana Veraldarvina hér síðustu tvær vikurnar. Nú er starfi þeirra lokið að sinni og sjálfboðaliðarnir farnir hver í sína áttina, sumir til sinna heimahaga, aðrir til móts við ný ævintýri. Veraldarvinir eru samtök sem hafa það að markmiði að stuðla að friði og vináttu milli manna, og að fólk umgangist náttúruna af virðingu.

Sjálfboðaliðarnir dvöldu að þessu sinni í Skólabúðunum á Reykjum í góðu yfirlæti og unnu þar að ýmsum umhverfisverkefnum. Margir íbúar urðu þeirra varir í gegnum Unglistahátíðina sem er nú nýafstaðin. Þar tóku Veraldavinir virkan þátt í ólíkum uppákomum og settu svip sinn á hátíðina í ár. Það var sveitarfélagið Húnaþing vestra sem sótti um að fá hópinn hingað til lands en náin og góð samvinna var við starfsfólk Skólabúðanna um verkefni og uppihald hinna góðu gesta. Hér eru nokkrar myndir frá starfi Veraldarvina við Skólabúðirnar.
-

Margar hendur vinna létt verk. Fyrsta verkefnið var að hreinsa gamla leiksvæðið og hressa upp á það.

Ieva frá Lettlandi og Merel frá Hollandi með íslenskan hrossaskít til að setja niður með nýjum trjáplöntunum.

Skólabúðirnar eru til fyrirmyndar varðandi endurvinnslu lífræns úrgangs og nota hænur til þess breyta káli og öðrum matarúrgangi í kraftmikinn áburð. Hér er verið að bera á hús hænsnanna.

Steindór starfsmaður Skólabúðana var svo lukkulegur að eiga afmæli og fékk ígulrós í gjöf frá Veraldarvinum, sem hann fékk að gróðursetja sjálfur.

Við sundlaugina var unnið að þökulögn og hreinsun. Nokkrir af sjálfboðaliðunum sem ættaðir eru frá suðrænum löndum þótti það undarlegur siður að gróðursetja gras.

Síðasta verk Veraldarvina var að gróðursetja hvert sína trjáplöntu í, Óskalund, skrúðgarð Litlu græningjanna. Gerð voru skilti fyrir hverja plöntu þar sem fram kemur nafn, land og ártal þess sem gróðursetti en einnig rituðu sjálfboðaliðarnir á skiltin heilræði á nokkrum tungumálum.
-
Það eru því góð verk, minningar, líf og heilræði sem þau skilja eftir sig: Yoonjung frá Kóreu, Kajsa frá Svíþjóð, Claire frá Bretlandi, Emma, Marie og Arnaud frá Frakklandi, Juliane frá Þýskalandi, Merel frá Hollandi og Saúl, Alenya, Alba, og Javier frá Spáni og Alexander frá Rússlandi og Ieva frá Lettlandi.

Umhverfisstjóri Húnaþings vestra þakkar þessum góðu vinum fyrir starf sitt hér í sumar og einnig starfsfólki Skólabúðanna, þeim Karli, Þorvarði, Ingunni, Halldóru, Steindóri og Hauki fyrir gott samstarf og ánægjulegar vikur.

Engin ummæli: