30 júlí 2005

Haltur leiðir blindan til Laugarbakka

-
Þeir eru margir ferðalangarnir sem leggja leið sína um götur og slóðir Húnaþings þessa dagana. Erindin eru margbreytileg og farkostirnir æði misjafnir. Sumir láta jafnvel tvo jafnfljóta duga og ganga eftir malbiki og slitlögum milli sýsluenda. Bjarki Birgisson og Guðbrandur Einarsson eru í þeim hópi. Í sumar hafa þeir gengið til góðs eftir þjóðveginum til að vekja athygli á málefnum fatlaðra barna og barna sem eiga við erfið og langvarandi veikindi að stríða.

Bjarki, Guðbrandur og samstarfsfólk þeirra halda úti heimasíðu á netinu, gangan.is, þar er hægt að fylgjast með ferðalaginu, skoða myndir og dagbókafærslur. Hér eru brot úr dagbókarskrifum þeirra er þeir fóru um Húnaþing vestra en myndirnar eru teknar á vél Guðrúnar Ragnarsdóttur: ...Þegar við svo loksins sáum niður í Miðfjörð kom Bjarki í ljós þar sem hann stóð við bíl okkar, glæsilegur ásýndum jarpur og spengilegur eins og Húnverskur gæðingur. Hjá honum stóðu tvær föngulegar konur. Þegar við komum að bílnum kom í ljós að þarna var kominn móttökunefnd Húnaþings vestra, þær Elín R. Líndal oddviti og Guðrún Ragnarsdóttir.
-
Guðbrandur og Bjarki með móttökunefnd Húnaþings vestra: steinahjónin Þbeta og Sumarliði, ásamt Elínu R. Líndal og Guðrún Ragnarsdóttir.
-
Þær buðu okkur velkomna í sveitarfélagið og færðu okkur að gjöf bókina Sögu Hvammstanga og hins forna Kirkjuhvammshrepps, ásamt myndbandsspólu um allar sveitir Húnaþings vestra. Bjarki var búinn að mana þær til að ganga síðast spölinn að Laugabakka sem þær auðvitað gerðu og fóru létt með það. Þegar á Laugabakka kom mætti okkur röskur hópur íbúa þar sem tóku á móti okkur og gengu með okkur að Bakkabúð versluninni á staðnum. Ein daman sem gekk með okkur í dag er sú yngsta sem hefur gengið með okkur hingað til tæplega 2 ára að aldri og heitir hún Birgitta Björt. Sannarlega óvæntar og frábærar móttökur, það var líka búið að bjóða okkur gistingu og við máttum fara í pottinn.

Síðan var verslað í morgunmatinn í versluninni Bakka og því næst skroppið á Hótel Eddu á Laugabakka þar sem við snæddum kvöldverð. Fengum við þar alveg úrvals mat, saltfisk og kjúkning. Okkur var svo tjáð það að við fengjum góðan afslátt af matnum vegna þess að við værum svo sætir. Eitthvað sem við höfum aldrei fengið áður og munum örugglega aldrei fá aftur. Þökkum við starfsfólki á Hótel Eddu Laugabakka innilega okkur og þó sérstaklega Emilie fyrir að segja að við værum sætir.

- Göngugarparnir boðnir velkomnir af íbúum Laugarbakka.


Nú erum við enn að nálgast takmarkið. Við höfum fengið frábærar móttökur í Húnaþingi vestra. Frábært fólk. Þar er verið að koma upp Grettis-sýningu á Laugabakka og hlakkar okkur til að koma seinna og sjá hana þegar hún verður tilbúinn. Kærar þakkir fyrir okkur Húnvetningar. Eitt af því sem gerir þá Bjarka og Guðbrand sérstaka er að Bjarki er hreyfihamlaður og Guðbrandur nær blindur. Yfirskrift göngunar er Haltur leiðir blindan - til betra lífs. Umhverfissfréttir óska Guðbrandi, Bjarka og samstarfsfólki velfarnaðar á göngu sinni og vonast til að sem flestir munu njóta átaks þeirra.
-

Engin ummæli: