Boðið var upp á íslenska glímu. Þjóðaríþróttinni voru gerð góð skil og allir fengu tækifæri til að prófa sporin undir góðri leiðsögn lærðra manna
Bekkirnir voru þétt setnir inni í veitingatjaldinu þar sem fyrstu atriðin fóru fram. Úti á hátíðarsvæðinu ringdi á réttláta sem rangláta en hlýtt var í lofti og því má e.t.v. segja að veðrið hafi verið hið skemmtilegasta
Tekið á honum stóra sínum. Það reyndist kvennskörungunum næsta auðvelt að keppa í bíldrættinum enda var Andrés, umsjónarmaður aflraunakeppninar, óspar á hvatningarorðin
Allir virtust skemmta sér vel og þá ekki síður yngri kynslóðin sem var í flestum tilvikum gúmmíklædd frá öxlum til ylja. Árni, alveg að verða 7 ára, var ánægður með daginn og þótti þetta vera hin besta skemmtun
Síðasta þrautin í aflraunakeppninni var hin alræmda dauðaganga, stundum kölluð. Hún fólst í því að burðast með íþyngjandi birði stutta vegleysu í kappi við tímann. Það sást vel á keppendum hverjir eru vanir að annast matarinnkaup fjölskyldunar...
en það eru að sjálfsögðu karlarnir. Hér eru þeir að nálgast markið með 45 kg í hvorri hönd
Með aflraunakeppninni lauk fjölbreyttri dagskrá Grettishátíðarinnar árið 2005. Óhætt er að segja að hátíðin hafi tekist vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki verið í sólskynsskapi á sunnudeginum. Spennandi verður að fylgjast með hátíðinni að ári en þá verður hún haldin í 10. sinn.
-
Engin ummæli:
Skrifa ummæli