18 ágúst 2005

Umhverfisviðurkenning Húnaþings vestra 2005

-
Umhverfisviðurkenningar í flokki einkalóða og fyrirtækja árið 2005 í Húnaþingi vestra voru veittar á Þinghús-Bar á Hvammstanga í dag. Nefnd um veitingu umhverfisviðurkenninganna ákvað að veita Versluninni Hlín og Hvammstangabraut 28, í eigu hjónanna Hermanns Ívarssonar og Sigurbjargar Jónsdóttur, Umhverfisviðurkenningu Húnaþings vestra árið 2005 í flokki fyrirtækja og einkalóða. Að mati nefndar vegna umhverfisviðurkenningar bera húsin og skrúðgarðar þeirra eigendum sínum vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegri ásýnd heimilis og fyrirtækis.
-
Margt fallegt gleður augun á lóðinni við Hvammstangabraut 28. Þar má meðal annars sjá landbúnaðartæki sem hefur verið gert upp og þjónar nú nýju hlutverki sem garðskreyting...
- ...og endur sem fljóta hljóðlátar á kyrrlátri tjörn
-
Umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings vestra óskar Hermanni og Sigurbjörgu hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar um leið nefndinni fyrir gott samstarf á liðnum árum.
-

Engin ummæli: