23 ágúst 2005

Sparkvöllur vígður á Hvammstanga

-
Í dag var nýr sparkvöllur vígður á Hvammstanga. Völlurinn, sem er staðsettur á lóð Grunnskólans, verður upplýstur í skammdeginu en hitalögn er undir gervigrasinu til þess að lengja notkunartíma hans. Þessi nýji sparkvöllur er mikilvæg viðbót við þau íþróttamannvirki sem fyrir eru í sveitarfélaginu.
-
Við vígsluna bað Eyjólfur Sverrisson, frá Knattspyrnusambandi Íslands, krakkana um að vera dugleg að nota nýja völlinn sinn og hugsa vel um hann.
Beðið eftir fyrsta leiknum.
-
KSÍ, Eimskipafélagið, VÍS, Olís og KB banki styrktu gerð vallarins en Húnaþing vestra bar hitann og þungann af framkvæmdinni. Framkvæmdirnar hófust í júní og þeir sem störfu mest að uppbyggingunni voru feðgarnir Benjamín Kristinsson, Jón Rafnar Benjamínsson, verktakarnir Flosi Eiríksson, Helgi Ólafsson, starfsmenn áhaldahúss og Vinnuskóli Húnaþings vestra. Ólafur Stefánsson yfirmaður tæknideildar Húnaþings vestra sá um skipulagningu og stjórnun verksins.
-

Engin ummæli: