Sparkvallarframkvæmdir eru nú langt komnar en starfsmenn sveitarfélagsins hafa unnið að uppbyggingu svæðisins í sumar. Nýji völlurinn er staðsettur á lóð Grunnskóla Húnaþings vestra og leysir gamla sparkvöllinn af hólmi. Það eru feðgarnir Jón Rafnar Benjamínsson og Benjamín Kristinnsson sem hafa unnið við smíðarnar ásamt verktökum og starfsmönnum áhaldahúsins.
Leiksvæði Grunnskólans á Hvammstanga. Þegar ritstjóra Umhverfisfrétta bar að garði var Flosi Eiríksson jarðvinnuverktaki að setja upp ljósastaura.
Horft norður að skólabyggingunni. Eins og sjá má er völlurinn allmikið mannvirki og mun vafalaust eiga eftir að gleðja unga sem aldna á næstu árum. Hér er Tómas Bergsteinn, 7 ára, við suðurenda vallarins. Nú styttist í að sparkvöllurinn verði tilbúinn til notkunar. Enn á þó eftir að ljúka ýmsum framkvæmdum s.s. smíði girðingar, jarðvegsvinnu og uppsetningu ljósabúnaðar. Allt kapp er lagt á að ljúka þeirri vinnu sem fyrst því nú líður brátt að fyrsta skóladegi barnanna.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli