03 september 2005

Mikið að gera hjá garðyrkjuverktökum

-
Í sumar hefur verið óvenjumikið um framkvæmdir í görðum á Hvammstanga. Víða er verið að smíða sólpalla, setja upp girðingar, flytja grjót og leggja stéttir, svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa verktakar haft fullt í fangi við að anna þeirri eftirspurn sem verið hefur síðustu mánuðina. Pétur Daníelsson, einn færasti garðyrkjuverktaki Húnaþings og Stranda, hefur ekki látið sitt eftir liggja í sumar við fegrun lóða og garða. Útsendari Umhverfisfrétta hafði nýverið upp á Pétri í skrúðgarði Þorvalds Björnssonar húseiganda við Hvammstangabraut og náði þessari fínu mynd af þeim félögum.
-
Þorvaldur Björnsson (t.v.) og Pétur Daníelsson (t.h.) stoltir við nýuppsetta
skrautgirðingu við aðalgötu Hvammstanga
-
Afar ánægjulegt er að sjá allar þær jákvæðu breytingar sem hafa orðið á lóðum og görðum hvarvetna í sveitarfélaginu nú í sumar.
-

Engin ummæli: