01 júní 2005

Umhverfisátak við Kolugljúfur

-
Laugardaginn 4. júní verða sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd að störfum við Kolugljúfur þar sem unnið verður að bættu aðgengi og öryggi þeirra sem um gljúfrin fara.
-
----------------------Kolugljúfur í Víðidal
-
Allir eru velkomnir að taka þátt í vinnunni hvort sem fólk vill vera allan tímann eða hluta úr degi. Unnið verður frá kl. 8:00 á laugardag og fram undir kvöld og síðan frá kl. 8:00 á sunnudag fram yfir hádegi. Valur Þór Hilmarsson umhverfisfulltrúi hjá Ferðamálaráði Íslands mun fylgja verkefninu úr höfn. Hafi einhver áhuga þá er gott að láta Sigrúnu hjá Ferðaþjónustunni Dæli vita við fyrsta tækifæri.
-

Engin ummæli: