-
Fjölmargir vegfarendur á Hvammstanga hafa rekið upp stór augu vegna nýjasta tækjabúnaðar sveitarfélagsins. Hér er á ferðinni byltingarkennd nýjung í gangstéttasópun.
-
Gamall og nýr tími mætast. Tvær af starfsstúlkum vinnuskólans, Inga og Guðbjörg, hér með hið nýja tæki.
-
Í stað þess að hamast á gamla góða strákústinum er nú einfaldlega hægt að renna nýja tækinu yfir stéttina og láta það sjá um erfiðið. Enn reynist þó mannshöndin nauðsynleg því ýta þarf tækinu handvirkt á undan sér en við það snýst hið innbyggða sópkefli.
-

Engin ummæli:
Skrifa ummæli