06 júní 2005

Söfnun á heyrúlluplasti

HH Gámþjónusta í samstarfi við Endurvinnsluna á Akureyri mun á næstu dögum sækja plast til þeirra aðila sem undanfarin ár hafa óskað eftir þeirri þjónustu.

Þeir sem ekki hafa látið sækja til sín plast áður, en hafa áhuga á því, eru beðnir að hafa samband við Hrannar í 895-2052 eða með tölvupósti í netfangið hrannarharalds@simnet.is, eigi síðar en 9. júní n.k. Dagskrá söfnunarinnar er eftirfarandi: Miðvikudagurinn 8. júní - söfnun í Víðidal, Fimmtudagurinn 9. júní - söfnun í Víðidal, Föstudagurinn 10. júní - söfnun í Fitjárdal, Laugardagurinn 11. júní - söfnun á Vatnsnesi, Miðvikudagurinn 15. júní - söfnun í Miðfirði, Fimmtudagurinn 16. júní - söfnun í Hrútafirði Ath. dagsetningar geta breyst
Kröfur frá Endurvinnslunni hf. eru eftirfarandi; Engir aðskotahlutir meiga vera í plastinu sem torvelda endurvinnslu s.s. hey, net og bönd. Losun á hverjum bæ skal taka sem skemmstan tíma, u.þ.b. 20 mínútur, því er mikilvægt að frágangur og aðkoma sé góð. Sorphirðuaðili er í umboði Endurvinnslunnar og því gert að hafa umsjón með að reglum um frágang og söfnun sé fylgt.

Engin ummæli: