Nú er sláttuhópurinn tekinn til starfa en fyrstu fermetrarnir voru slegnir við Hvammstangabrautina í dag. Annars staðar í sýslunni fór fram mikið ,,skógarhögg" er bifreið vinnuskólans keyrði um Víðidal og klippti þar tré og runna.
Ingunn og Zaldy leiðbeinendur að saga niður gamlann alaskavíðir við Litlu Hlíð. Til fróðleiks má nefna að fossinn hægra meigin á myndinni heitir Bergárfoss.
Ekki er hægt að keyra framhjá Kolugljúfri án þess að staldra aðeins við og njóta útsýnisins.Kolugljúfur sem er rúmlega kílómetri að lengd er 50-60 metra djúpt á köflum. Hér er náttúran stórbrotin og eins gott að vera ekki mjög lofthræddur þegar horft er niður í gljúfrið. Þjóðsagan segir að tröllskessan Kola hafi grafið gljúfrið og sest þar að. Í túninu á Kolugili er álagablettur, Koluhóll, þar sem Kola ku vera heygð með fjársjóði sínum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli