Sannkölluð vorblíða hefur ríkt hér undanfarna daga eins og flestir íbúar hafa orðið varir við. Snjór er að mestu horfin þó að harðir, gamlir, skaflar hér og þar beri vetrinum enn vitni.
-
Horft yfir Bangsatún á Hvammstanga
Undirritaður rakst á þessa ungu húnvetninga þar sem þau voru í einu vinsælasta leiktæki Hvammstanga, styttunni við félagsheimilið. Daníel Örn og Emelía Diljá veittu góðfúslegt leyfi fyrir myndatöku, en voru þó treg til þess í upphafiÞó að e.t.v. sé full snemmt sé að fagna komu sumars, enda mars mánuður nýbyrjaður, þá er um að gera að njóta blíðunnar með öllum tiltækum ráðum. Mikilvægt er þó að gæta þess að kvefast ekki því hitastigið er rétt um frostmark.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli