07 mars 2005

Viðgerð á netgirðingu við Grunnskólann


Verið er að endurnýja netgirðinguna við gamla sparkvöllinn. Netið var orðið nokkuð slitið og fótboltaköppum farið að leiðast hlaupin eftir tuðrunni niður grasbrekkur og götur.

Starfmenn sveitarfélagsins að losa niður gamla netið.
Sett var upp sterkara net stað þess gamla til að standast betur álagið.

Þess má geta að búið er að panta net til að laga mörkin á vellinum og ættu því nemendur Grunnskólans, og aðrir knattspyrnuáhugamenn, fljótlega að geta tekið gleði sína á ný.

Engin ummæli: