02 mars 2005

Söfnun á heyrúlluplasti

Þeir aðilar í Húnaþingi vestra sem þurfa að losna við heyrúlluplast, sem fyrirhugað er að safna á næstu tveimur vikum, eru beðnir að hafa samband við H.H. Gámaþjónustu í síma 895-2052 eða með tölvupósti í netfangið hrannarharalds@simnet.is, eigi síðar en 8. mars n.k.
-
Auðvelt er að smíða kassa til að þjappa plastinu saman og binda. Slíkt sparar mikið pláss og auðveldar mjög söfnunina.
-
Sú breyting hefur orðið á söfnuninni að nú fer allt plast sem safnast í endurvinnslu til Akureyrar. Kröfur frá Endurvinnslunni hf. eru eftirfarandi;
Sem minnst sé af aðskotahlutum í plastinu sem torvelda endurvinnslu s.s. hey, net og bönd.
-
Losun á hverjum stað skal taka sem skemmstan tíma, u.þ.b. 20 mínútur, því er mikilvægt að frágangur og aðkoma sé góð.
Sorphirðuaðili er í umboði Endurvinnslunnar og því gert að hafa umsjón með að reglum um frágang og söfnun sé fylgt.

Engin ummæli: