Kvennskörungarnir Ingibjörg Pálsdóttir, Magnea Guðnadóttir (ljósmóðir) og Hulda Tryggvadóttir (læknisfrú)
-
Á myndinni hér fyrir ofan sést að hellurnar eru nokkuð ólíkar þeim sem við þekkjum í dag og myndu varla uppfylla staðla Evrópusambandsins. Hönnun garðsins var í klassískum stíl (líkt og Kvennfélagsgarðurinn á Hvammstanga). Einn ás, hellulagður stígur, liggur í gegnum miðjan garðinn og endar í upphækkaðri skeifu. Limgerði eru svo í úthringnum en stök tré og skrautrunnar þar fyrir innan.
Viðbyggingin við norðurenda hússins, fyrir miðri mynd, er gamla líkhúsið sem seinna var rifið. Takið eftir tvöfalda bílskúrnum fyrir ofan húsið. Þessi vélaskemma er nú stödd í vinnuporti Vegagerðarinnar við Höfðabraut á Hvammstanga.
Erfitt er að sjá að þessi mynd sé tekin frá sama sjónarhorni
Svona lítur byggingin og garðurinn út árið 2005. Búið er að rífa líkhúsið, byggja við og hækka gamla húsið um eina hæð. Aðeins gluggarnir þrír og hurðin gefa til kynna að hér er um sama mannvirki að ræða.
Horft í norður að skeifunni við enda stígsins
Á myndinni hér fyrir ofan sést hvernig hellulagði stígurinn endar á notalegan hátt þar sem hægt er að setjast á bekk í sæmilegu skjóli fyrir norðanáttinni. Í fjarska, hægra megin á mynd, sést bærinn Svalbarð þar sem Árni Ebenesarson og Helga Jónsdóttir bjuggu. Fyrir miðri mynd sést hinsvegar Bærinn Garðhús (núna Miðtún) en þar bjuggu Bjarni Gíslason og Jórunn Jakobsdóttir
Horft í norður, engin stígur, engin skeifa, engir gamlir bæir
Myndirnar tvær fyrir ofan eru teknar frá sama sjónarhorni en ótrúlegt er sjá allar breytingarnar sem orðið hafa. Gamli skrúðgarðurinn var þarna reyndar í mörg ár, með hellulagða stígnum og allskyns skrautrunnum en er horfinn nú. Í tengslum við stækkun og breytingu á húsakosti Heilbrigðisstofnunarinnar voru gerðar miklar breytingar á umhverfinu og allur garðurinn tekinn í gegn. Í dag er hann einn sá fallegasti hér um slóðir og hlutu aðstandendur garðsins m.a. umhverfisviðurkenningu sveitarfélagsins árið 2003. Það er þó ekki laust við að maður sakni örlítið gamla klassíska skrúðgarðsins.

Fátt er betra en að fá sér sjóðandi sopa eftir allt stritið. Magnea, Hörður Þorleifsson læknir, Hulda konan hans og Ingibjörg
Einn mann vantar tilfinnanlega á myndirnar en það er Sigurður Eiríksson sem ásamt fjórmenningunum hér fyrir ofan varði ótal stundum í gróðursetningar og annað nostur í garðinum.
--

Engin ummæli:
Skrifa ummæli