Víða sést þess merki að sumarið nálgast nú hægt og rólega. Í áhaldahúsi sveitarfélagsins er t.d. verið að undirbúa gömlu vinnuskólakerruna undir sláttuvéla- og heyflutninga komandi vertíðar.
Kerran mátti muna sinn fífil fegri þar sem krossviður og annar búnaður hennar var orðin mjög bágborinn. Gaman verður að sjá hver útkoman verður eftir þessar gagngeru endurbætur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli