25 apríl 2005

Hrafnshreiður í furutré

Ásdísarlundur í Miðfirði er merkilegt skógræktarsvæði gjört í minningu móður Grettis sterka, Ásdísar frá Bjargi. Þar er margt að sjá m.a. fágætt hrafnshreiður uppi í furutré. Það er sjaldgjæft að hrafnar velji sér slíkan hreiðurstað því þeir kjósa frekar klettaskorur og -sillur. Ritstjóri Umhverfisfrétta ákvað að fara á stúfana og kanna þetta mál betur.

Ritstjóri á trjátoppi í Ásdísarlundi. Hreiðrið fer ekki fram hjá nokkrum manni því bönd, gaddavír, bein og fiður eru á víð og dreif allt um kring fyrir neðan hreiðrið.
Hreiðrið er listavel fléttað saman úr böndum, beinum og greinum.
Á ferð minni um skóglendið rakst ég á þennan vígalega skógarhöggsmann sem horfir hér íhugull í augu linsunar. Þetta mun vera Þorvaldur Björnsson garðyrkjumaður og hóteleigandi á Hvammstanga.
Undanfarin ár hefur hrafnapar verpt þarna og helgað sér þetta óðal. Ekki varð ég þó var við hrafnanna í Ásdísarlundinum þetta skiptið. Það hefði varla farið á milli mála ef þeir hefðu verið staddir nærri enda er þeim er ekki mjög vel við að menn séu að grúska í hreiðrunum þeirra.

Engin ummæli: