06 maí 2003

Minnisvarði um látna sjómenn

Mjög gott veður var í dag, skýjað en nokkuð heitt og úrkomulaust. Greniplönturnar komu til Hvammstanga í dag Við Sölvi grófum holur og plöntuðum nokkrum þeirra niður. Ég fór með greni til Láru á Kirkjuvegi, Davíðs á Hvammstangabraut og eina plöntu í Sóltún. Við vökvuðum löngu beðin í Skrúðgarðinum, settum moltu yfir nýgróðursettu plönturnar og keyptum 100 uppbindistaura.
Seinnipartinn í dag gengum við Sigurður Grétar sóknarprestur, Skúli Þórðarsson sveitarstjóri og Jónína hjá Kvennabandinu um nokkra staði á Hvammstanga til að finna stað fyrir minnisvarða um horfna sjómenn. Niðurstaðan var sú að ákveðið var að skoða betur hornið hjá gömlu viktinni á móti Kaupfélaginu.

Engin ummæli: