-
Í dag var sól og blíða. Ólafur Valdimarsson og Sigurður Bragason hjá áhaldahúsinu komu og grófu fyrir bekkjunum á Bangsatúni. Ársæll Daníelsson og Eyþór Eðvaldsson hjá Rarik komu einnig og við ræddum um lega rafstrengja í garðinum. Ársæll merkti fyrir mig legu strengsins neðst í garðinum. Eftir gröftinn sturtaði Sigurður Bragason grús í holurnar góðu. Í dag grófum við Sölvi holur í Bangsatún fyrir meters háum grenitré sem til stendur að gróðursetja í garðinn. Við félagarnir gróðursettum myndarlegt greni við Tónlistarskólann og við ,,skólastjórahúsið" við Kirkjuveg. Það er semsagt víða verið að grafa holur.
Ég hringdi og ræddi við verkstjóra Mjólkurstöðvarinnar í Búðardal sem gaf jákvætt svar á fyrirhugaða gróðursetningu í Mjólkurstöðvartúnið á Hvammstanga. Við Guðmundur Erlendsson ræddum um að setja niður göngubrýrnar enda kominn tími á slíkt.
Grafið fyrir bekkjum í Bangsatún
Engin ummæli:
Skrifa ummæli