21 mars 2003

Úr fundargerðarbókum

Á fundi Byggðaráðs var bréf Björns Valdimarssonar lagt fram, en þar er óskað leiðréttingar á álagningu sorpeyðisngargjalds á sumarhús í landi Litlu-Borgar. byggðarráð samþykkir að hafna erindinu þar sem um réttmæta álagningu er að ræða sbr. samþykkt nr. 159/2000 og gjaldskrá um sorphirðu í Húnaþingi vestra.

Á fundi Landbúnaðar- og samgöngunefndar kynnti Ólafur Stefánsson drög að samþykkt um rotþrær og siturlagnir fyrir sveitarfélagið. Fram komu hugmyndir um að sveitarfélagið stæði að magninnkaupum á rotþróm til að ná niður verði fyrir þá aðila sem eiga eftir að koma sér upp slíkum búnaði. Sjá 48. fund Landbúnaðar- og samgöngunefndar.

Á sama fundi fór sveitarstjóri yfir stöðu leigusamninga um Lækjarbæ og Fosskot. Samþykkt að leggja til að legja Örnólfi Björgvinssyni til ársloka 2003 gegn hreinsun á landinu enda nýting Þverár og Efra-Núps samhangandi vegna girðingarleysis.

Engin ummæli: