09 maí 2003

Úr fundagerðum vikunar

-
Í Landbúnaðar- og samgöngunefnd voru kynt drög að samþykktum um rotþrær og siturlagnir í Húnaþingi vestra. Nefndin mælir með samþykktinni. Á sama fundi undirrituðu Vegagerð ríkisins og Húnaþing vestra samning um friðun hringvegar þjóðvegar nr. 1, Hvammstangavegar þjóðvegar nr. 72 og hluta Miðfjarðarvegar þjóðvegar nr. 704 norðan þéttbýlis á Laugarbakka, í Húnaþingi vestra fyrir ágangi búfjár.
-
Á fundi Byggðarráðs samþykkti Byggðarráð að fela umhverfis- og garðyrkjustjóra að leita samstarfs við hlutaðeigandi aðila vegna samræmdra merkinga í sveitarfélaginu. Tillögum verði skilað til byggðarráðs eigi síðar en í lok októbermánaðar 2003.
-
Á fundi Skipulags- og bygginganefndar lagði nefndin til að Árni Ragnarsson arkitekt yrði fengin til að ljúka deiluskipulagi Túnahverfis. Á sama fundi var fjallað um erindi Þórunar Guðmundsdóttur fyrir hönd þjóðminjasafnsins, varðandi lóð undir Kirkjuhvammskirkju. Nefndin mældi með að gengið verði frá lóðasamningi.

Engin ummæli: