25 apríl 2002

Tillaga að jarðvegsgerð í Húnaþingi vestra

Efni: Tillaga að jarðvegsgerð í Húnaþingi vestra
Unnið verði að því að útbúa jarðvegsgerð / moltugerð hjá sveitarfélaginu. Heppilegasti staðurinn undir það starf er malarplanið er líklegast uppi á Ásnum fyrir ofan Garðaveg á Hvammstanga. Þar verður tekið á móti grasi, mosa og öðrum plöntuleifum svo og trjágreinum. Flokkað verður í tvo flokka; Annarsvegar verði það gras, mosi og aðrar plöntuleifar, hinsvegar trjágreinar sem fara í kurlun. Það sem þarf að gera er eftirfarandi.

1. Safna upplýsingum hjá aðilum með sambærilega starfsemi um möguleg vandamál og úrlausnarefni, t.d. Molta, Kirkjugarðar Reykjavíkur, Garðyrkjustjóri Skagafjarðar.
2. Mæla upp svæðið og teikna.
3. Girða svæðið af með gróðri.
4. Yfirfara söfnunarferlið og endurskipuleggja.
5. Gera vinnustunda áætlun til að halda starfseminni í viðunnandi farvegi.

Mikill skortur er á góðri gróðurmold hjá Húnaþingi vestra. Sökum þess á trjágróður, blóm og grassvæði oft erfitt uppdráttar. Möguleiki væri að selja almenningi, stofnunum moltu og verði sem sambærilegt verði Sorpu hf.