Búið er að hreinsa til í kringum nýju rólurnar við Laugarbakkaskóla en Ástvaldur Benediktsson verktaki kom í dag með nýjan sand undir rólurnar. Þessar rólur voru settar niður í stað þeirra gömlu sem stóðu á sama stað en uppfylltu ekki reglugerðir og staðla sem gilda um slík leiktæki.
grófjafna sandinum út.
Nýji sandurinn þjónar öryggishlutverki við rólurnar því minni hætta er á að slasa sig við fall í þennan sand heldur en í grófu mölina sem var hér áður. Þegar búið var að fínjafna sandinum út með handverkfærum voru rólurnar festar upp. Nú ættu því börn í grunnskólanum að taka gleði sína á ný eftir nokkura mánaða rólustopp.