Efni: Tillaga að fegrun gámasvæðis við höfnina
Til að fá stöðuleifi fyrir gáma / eða því framlengt við Hvammstangahöfn, verða sett ákveðin skilyrði. Samkvæmt minni athugun virðist engin gámur við höfnina hafa stöðuleifi. Búið verði að skipuleggja og afmarka svæði hvers og eins. Viðkomandi verði að hafa gám sinn þar / eða færa þangað. Viðkomandi verði að virða úthlutunarsvæði sitt og geyma ekki hluti fyrir utan það, á svæðum sem aðrir hafa fengið úthlutað eða í umsjón sveitarfélagsins.
Til að fá stöðuleifi verði viðkomandi gert skylt að lakka gám sinn í ákveðnum lit, skilgreindum af tæknideildinni og hafa útlit gámsins snyrtilegt þannig að ekki stafi sjónmengun af. Undirritaður setti sig í samband við Vigfús G. Gíslason sem sér um sölumálin hjá Hörpu-Sjöfn og hann bauð okkur 30% afslátt af grunnum og lökkum í tengslum við verkefni ,,Fegurri sveitir". Í samráði við þá myndum við síðan ákveða hvaða litur félli best inn í umhverfið.
Sveitarfélagið bendir bændum á þetta grunn- og lakktilboð, útvegar leiðbeindingar fyrir gámaeigendur varðandi hvernig best sé að standa að lökkuninni og undirvinnunni og tekur jafnvel einhvern þátt í kostnaði s.s. við að færa til gáma og losa í burtu rusl.

ABO ,smkv. tillögu Skúla Guðbjörnssonar frv. umhverfisfulltrúa
1 ummæli:
Hér vantar teikningarnar sem fylgdu með þessari tillögu
Skrifa ummæli