02 maí 2002

Velkominn í Vinnuskóla Húnaþings vestra!

Við byrjum 4. júní n.k og mætum þá klukkan átta um morguninn við aðalbækistöð okkar Norðurbraut 14. Þetta er gamla svarta timburhúsið sem vinnuskólinn var í síðasta sumar. Húsið verður vel merkt þannig að engin ætti að villast. Vinnutímijnn er frá 8 til 12 og síðan aftur, fyrir þá sem vinna allan daginn, frá 13-17.
Mundu að koma með öll hugsanleg hlífðarföt og skóbúnað vegna þess að við vitum ekkert hvernig viðrar á okkur í sumar.
Hollt og gott nesti er einnig nauðsynlegt til að geta unnið af krafti við fjölbreytt verkefni. Gos og sælgæti er best að brúka á laugardagskvöldum en bóndabraut með kjarnmiklu áleggi er heppilegri vinnuskólafæða.
Við munum læra og þjálfa vinnubrögð í skógrækt, göngustígagerð, almennri skrúðgarðyrkju, fegrun og snyrtingu, smíðum, málun og mörgu, mörgu fleira. Einnig verður boðið upp á fræðslu af öðrum toga en það mun skýrast betur síðar.
Markmið Vinnuskólans er að þú lærir góð vinnubrögð og hafir gleði af starfinu.

Hlökkum til að sjá þig!

Fyrir hönd Vinnuskóla Húnaþings vestra

Arnar Birgir
Umhverfis- og garðyrkjustjóri

Engin ummæli: