05 apríl 2002

Auglýsing eftir nemum í vinnuskólann

Vinnuskóli í Húnaþingi vestra 2002

Húnaþing vestra mun starfrækja vinnuskóla í sumar fyrir 13, 14, 15, og 16 ára ungmenni. Hlutverk vinnuskólans er að kenna þeim almenn vinnubrögð og örva þau til hollrar útiveru. Í skólann verða tekin ungmenni með lögheimili í sveitafélaginu, sem fædd eru 1989, 1988, 1987 og 1986.
Vinnuskólinn mun taka til starfa þriðjudaginn 4 júní n.k.. Vinnutími er frá mánudegi til föstudags og vinna 13 og 14 ára ungmenn hálfan daginn.
Vinnutími er frá klukkan 8:00 til 12:00 árdegis og 13:00 til 17:00 sídegis. Stefnt er að því, að ungmenni fædd 1989 og 1988 fái vinnu hluta sumarsins en þau sem fædd eru 1987 og 1986 fái vinnu í allt sumar. Breytingar kunna að verða gerðar eftir að séð verður hversu margir sækja um vinnu í skólanum.


Laun verða; árgangur
1989 255 kr/klst
1988 294 kr/klst
1987 349 kr/klst
1986 408 kr/klst

Nemendur skulu sýna stundvísi, háttprýði og dugnað. Tóbaksneysla á vinnustað er stranglega bönnuð. Agabrot geta valdið uppsögn úr starfi. Innritun í skólann fer fram á skrifstofu Húnaþings vestra og eru umsækjendur hvattir til að innrita sig sem fyrst og eigi síðar en 22. maí næstkomandi. Við innritun þarf auk nafns umsækjenda að gefa upp kennitölu og síma.

Engin ummæli: