-
Nýlega færðu fulltrúar Kvenfélagsins Bjarkar á Hvammstanga Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra að gjöf sturtuhjólastól fyrir hreyfihamlaða.
-

Við afhendingu gjafarinnar sagði Svava Lilja Magnúsdóttir, formaður kvenfélagsins að kaupin á stólnum væru fjármögnuð með blómasölu á bóndadaginn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kvenfélagskonur á Hvammstanga sýna rausnarskap sinn því fyrir rúmu ári síðan færði félagið íþróttamiðstöðinni að gjöf hjartarafstuðtæki að verðmæti um 180 þús. kr.
-
Skúli Þórðarson sveitarstjóri tók á móti gjöfinni og þakkaði félaginu hlýhug og velvild sem það hefði sýnt. Sá samhugur er gjafir þessar lýsa eru samfélagi okkar mikils virði og fyrir það ber að þakka sérstaklega. Viðstöddum var svo boðið til kaffiveitinga í íþróttamiðstöðinni.
-
Engin ummæli:
Skrifa ummæli