Á fundi byggðarráðs 13. mars s.l. gerði undirritaður grein fyrir drögum að svæðisáætlun fyrir Húnaþing vestra um meðhöndlun úrgangs 2006-2020.

Mikilvægt er að sorphirðuílát séu snyrtileg og vel merkt.
Í svæðisáætluninni var haft hliðsjón af markmiðum sem nefnd um Staðardagskrá 21 lagði fram og sveitarstjórn samþykkti. Í svæðisáætluninni koma m.a. fram markmið um að draga úr úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum og framkvæmdaáætlun fyrir tímabilið 2006-2020. Byggðarráð samþykkti að fela umhverfis- og garðyrkjustjóra að kynna skýrsludrögin fyrir íbúum sveitarfélagsins og óska eftir ábendingum.
Hér á heimasíðunni er hægt að senda inn ábendingar varðandi drögin eða fyrirspurnir á netfangið umhverfisstjori@hunathing.is
Engin ummæli:
Skrifa ummæli