Hér eru myndir sem ég hef tekið af uppáhaldsfyrirsætunum mínum í þessum mánuði. Sú fyrsta sínir nýuppgreðan gám undir blöð og pappír sem verður staðsettur á ný við Vinnuskólahúsið, en þess má geta að Óli Vald er að skrúfa skiltin á gámin og leggja þar með á hann lokahönd þegar þessi mynd er tekin. Næsta mynd sínir nýuppgerðan gám undir gler og postulín. Næst er það nýja timburskúffan sem sveitarfélagið leigir nú af H.H.Gámaþjónustunni og tekur við af opnum gámi sem var orðin mikill þyrnir í augum Hrannars Haraldsson hjá H.H.G og sömuleiðis ópraktískur fyrir sveitarfélagið. Að lokum eru það tvær myndir sem ég tók á eftirlitsferð minni um Vatnsnes með Hrannari. Við fórum þangað til að skoða noktun á gámum þar og hvort þar sé þörf á tíðari eða minni losun. Fyrri myndin sýnir pakkfullan gám við Víðihlíð en sú síðari næstum tóman gám við Ósa.








Engin ummæli:
Skrifa ummæli