20 ágúst 2002

Kirkjugarðurinn við Breiðabólstað

Veðrið var þurrt fyrri hluta dagsins en þegar leið á daginn fór að rigna. Þeir starfsmenn sem eftir eru í vinnuskólanum fóru út að hinu forna kirkjusetri, Breiðabólstað við Vesturhóp, til að vinna að slætti.

Stutt er síðan miklar endurbætur voru gerðar á kirkjugarðinum við Breiðabólsstað og er garðurinn því í góðu ástandi.
Slegið og rakað. Ingunn verkstjóri að gera sig klára í sláttinn.

Auk kirkjugarðsins slóum við einnig meðfram girðingu þeirri er tilheyrir efri garðinum. Starfsmenn í dag voru sex.

Engin ummæli: