Að venju er búið að vera mikið að gera í vinnunni og ólík mál sem koma inn á borð til okkar. Þessi mál eiga það sameiginlegt þó að vera innivinna. Nú er lítið um hressandi útivinnu en þess í stað situr maður boginn við skjáinn með magaverki vegna of mikils kaffiþambs. Undanfarna daga hef ég mest unnið að undirbúningi komandi sumars. Þá eru ótaldar ýmsar skýrslur, s.s. svæðisáætlun Húnaþings vestra um meðhöndlun úrgangs 2006-2020. Einnig hefur töluverður tími farið í teiknivinnu og erum við nú að setja okkur inn í nýju teikniforritsútgáfuna AUTODESK CIVIL 3D. Næstu þrjá daga mun ég svo vera á námskeiði hjá fyrirtækinu Snertli í Kópavogi til að ná tökum á tækinu. Nýlega fengum við þessa loftmynd af Hvammstanga, hún er frá júlí 2005. Því miður get ég ekki birt hana hér í betri upplausn, því þá yrði sveitarfélagið líklega kært af fyrirtækinu sem seldi okkur myndina. Það eru ótrúlega strangir samningar í gangi með þessi gögn.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli