02 mars 2006

Aðeins heimilissorp takk!

-
Víða í dreifbýli Húnaþings vestra eru staðsettir sorpgámar við þjóðvegi. Eins og flestir vita eru þessir gámar ætlaðir undir heimilisúrgang, s.s. eldhúsúrgang og plastumbúðir. Ekki er leyfilegt að setja í þá timbur, málma, heyrúlluplast eða aðra þá hluti sem ekki geta flokkast sem heimilisúrgangur.
-
Gámur í dreifbýli Húnaþings vestra fyrir heimilisúrgang.
-
Á Hvammstangahöfn er gámasvæði þar sem íbúar, stofnanir og fyrirtæki geta flokkað úrgang. Starfmenn sveitarfélagsins og sorphirðuverktaki hafa óbeina vöktun með gámunum en íbúum er treyst til að halda flokkun og umgengni góðri enda er það hagur allra. Á Hvammstangahöfn eru gámar fyrir timbur, brotamálma, gler, hjólbarða, kælitæki, og ónýt húsgögn.
-
Þess má geta að tekið er á móti fernum og dagblöðum við matvörubúð Kaupfélagsins og við verslunina Bakka, Að lokum má þess geta að víða í sveitarfélaginu er tekið á móti spilliefnum s.s. við Búland 3 Hvammstanga, í Víðigerði og Staðarskála.
-

Engin ummæli: