Í dag unnu starfsmenn og nemendur vinnuskólans ásamt áhaldahúsi við að setja nýtt gras á umferðareyjar við Hvammstangabraut. Veðrið var frábært í dag og vinnan gékk mjög vel. Grasið á eyjunum var orðið illa farið og kominn tími á lagfæringu. Lokafrágangi mun væntalega ljúka á morgun.
Í sumar verður lögð áhersla á aðkomuna inn að Hvammstanga og umhverfi Hvammstangabrautar. Þá verður einnig hellulagt undir nýjan bekk við götuna og nýjar ruslatunnur settar upp.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli