01 desember 2004

Staðardagskrá í Húnaþingi vestra -tilkynning

Með hvaða hætti getum við íbúar Húnaþings vestra nýtt okkur auðlindir sveitarfélagsins án þess að spilla afkomumöguleikum barna okkar? Staðardagskrá 21 er stefnumótun í samræmi við viðamikla áætlun um sjálfbæra þróun sem gerð var á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1992. Hugtakið sjálfbær þróun felur í sér umhyggju fyrir velferð komandi kynslóða.

Um árabil hefur vinnuhópur unnið að gerð Staðardagskrár fyrir Húnaþing vestra en hægt að nálgast þau drög hér Jafnframt liggja drögin frammi á skrifstofu og bókasafni Húnaþings vestra. Vinnuhópinn skipa; Björn Ingi Þorgrímsson, Jóhann Albertsson, Rafn Benediktsson, Skúli Guðbjörnsson og Sigríður Hjaltadóttir. Starfsmaður hópsins er Arnar Birgir Ólafsson umhverfis- og garðyrkjustjóri.

Staðardagskrá 21 er ekki einkamál sveitarstjórnar eða ákveðinna nefnda. Allir íbúar eiga að hafa tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Á skrifstofu, bókasafni og hér getur þú komið ábendingum, tillögum og spurningum þínum á framfæri.

Í hvaða verkefni á að ráðast? Hvað er vel gert og hvað ekki? Hvernig viltu að sveitarfélagið þitt verði árið 2020? Sendu okkur línu og legðu þannig þitt af mörkum til að skapa spennandi framtíðarsýn fyrir Húnaþing vestra. Til að fá frekari upplýsingar eða til að koma ábendingum á framfæri er bent á að hafa samband við Arnar Birgi Ólafsson í síma 869-3380

Engin ummæli: