Grænalaut er nafnið á söfnunarsvæði Húnaþings vestra en þar fer fram öll urðun, söfnun, endurvinnsla og geymsla á stærri hlutum frá fyrirtækjum og einstaklingum í héraðinu.
g
Söfnunarsvæðið Grænalaut er rúmlega þrír hektarar á stærð og staðsett um þrjá kílómetra norðan Hvammstanga. Tilkoma Grænulautar er forsenda fyrir góðu skipulagi í umhverfismálum sveitarfélagsins og nýverið fékk svæðið starfsleyfi sem gildir til 2017.Hér er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir íbúa sveitarfélagsins, enda sparast gífurlegir fjármunir og eldsneytisnotkun að þurfa ekki að flytja þúsundir tonna af úrgangi úr sýslunni til annarra landshluta. Grænalaut samræmist jafnframt stefnumiðum Húnaþings vestra um sjálfbæra þróun. Staða héraðins í umhverfismálum og endurvinnslu er nú mjög góð og jafnast fyllilega á við það besta sem gerist annars staðar á landinu.
Árið 2002 stóð tæknideild sveitarfélagsins staðið frammi fyrir mörgum flóknum vandamálum í umhverfismálum sveitarfélagsins. Ákveðið var að finna sameiginlegan flöt á lausn þeirra og marka framtíðarstefnu fyrir málaflokkinn. Hluti þeirrar stefnu var að búa til eitt miðlægt svæði, þar sem víðtæk umhverfistengd starfsemi færi fram.
Framkvæmdir við Grænulaut hófust fyrir tveimur árum í kjölfar samninga sem gerðir voru við landeigendur Syðri-Kárastaða á Vatnsnesi en um árabil hafði urðun á heimilis- fyrirtækja- og sláturúrgangi farið þar fram. Þá var timbur-, hjólbarða- og brotajárnshaugum, sem voru á Hvammstanga og Laugarbakka lokað og svæðin hreinsuð í kjölfarið, enda orðið þyrnir í augum íbúa.
Í kjölfarið var tekin var í notkun 3000 fermetra malarplan í Grænulaut og móttaka hafin á þessum hráefnum, timbri, hjólbörðum og brotajárni. Það ár skilgreindi Úrvinnslusjóður Grænulaut sem móttöku- og söfnunarsvæði sitt fyrir bifreiðar og hjólbarða. Nýverið varð tekið í notkun geymsluplan á afgirtu svæði í Grænulaut, þar sem íbúum gefst kostur á að geyma verðmæti sín, s.s. gáma, vinnutæki, bifreiðar og aðra hluti sem erfitt er að finna geymslu fyrir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli