03 febrúar 2002

Óveður í Húnaþingi

Í gær skall á mikið óveður í Húnaþingi sem og víða annarsstaðar á norður- og vesturlandi. Tjón varð víða á þessum slóðum og samgöngur fóru allar úr skorðum. Hér í sveitarfélaginu var víða hægt að sjá skemmdir eftir veðrið. Skjólgirðingar brotnuðu niður, gámar fuku út í móa og glæsileg tré misstu greinar sínar. Slík er saga þessa glæsilega trés sem stendur við Strandgötuna á Hvammstanga.
Gamla lerkitréð við Strandgötu á Hvammstanga fór illa í óveðrinu í gær.
Hið virðulega lerkitré missti mjög stórar greinar þegar norðanvindurinn skall á trjákrónuna. Líklega var þó kominn fúi í tréð og greinarnar því viðkvæmari fyrir vikið. Þetta tré mun hafa verið gróðursett skömmu eftir 1930 og er því eitt elsta tré Hvammstanga.

Engin ummæli: