04 febrúar 2002

Lagfæringar í Vinnuskólahúsinu

Við Norðurbraut á Hvammstanga stendur gamalt timburhús. Í gegnum tíðina hefur það þjónað mörgum hlutverkum en upphaflega var það byggt undir rörasteypu. Um var að ræða litla steypustöð sem framleiddi einkum steinrör. Rörasteypan var sett á fót árið 1963 af gamla Hvammstangahrepp. Undanfarna daga hafa verið gerðar ýmsar breytingar á þessu húsi, sem nú gengur undir nafninu Vinnuskólahúsið. Verið er að stækka kaffistofu nemenda um helming og setja upp fatahengi og hillur fyrir verkfæri og áhöld.
Vinnuskólahúsið stendur við Norðurbraut 14 á Hvammstanga.
Ólafur Valdimarsson, starfsmaður áhaldahúss, aðstoðaði undirritaðan við smá innanhúsarkitektúr. Hér er búið að rífa niður veggi og verið að slá upp nýjum. Pappatætingunni hefur verið lokuð af, kaffistofan stækkuð og fatahengi fyrir krakkana útbúið.
Eins og sjá má á myndinni stendur vinna yfir í Vinnuskólahúsinu, allt á tjá og tundri.

Þegar gamla rörasteypan hætti starfsemi varð Norðurbraut 14 áhaldahús hreppsins um nokkurra ára skeið, þar til sú starfsemi flutti um set. Þá var húsið leigt út um tíma og síðan stóð til að rífa það enda löngu búið að skipuleggja íbúðarbyggð á þessu svæði. Sumarið 2001 fékk vinnuskólinn að nota húsið undir starfsemi sína og einnig var þar staðsett pappatætingsvél sem starfsfólk Iðju hafa haft umsjón með. Á þriðjudögum sér starfsfólk Iðju um að taka hráefnið úr blaðagámnum, flokka og tæta hráefnið niður í 10-12 kg ruslapoka. Þeir pokar eru síðan seldir hestamönnum og öðrum sem þess óska. Húsið er orðið nokkuð hrörlegt enda búið að vera í niðurníðslu síðustu ár.

Engin ummæli: