06 janúar 2002


Sveitarfélagið Húnaþing vestra varð til við sameiningu sjö sveitarfélaga árið 1998. Heildarstærð þess er 2.580 km2 og nær yfir alla vestur Húnavatnssýslu. Þrátt fyrir að landsvæðið sé stórt eru íbúar þess aðeins um 1200 sálir. Árið 1985 voru íbúar tæplega 1600 og hafa því fækkað um 20% á þessu tímabili. Þá er aldursskipting þannig að yngri fólk er hlutfallslega færr en það eldra. Aðal þéttbýliskjarnarnir eru Laugarbakki með um 100 íbúa og Hvammstangi með um 600.
Í vestur Húnavatnssýslu er land víðast hvar gróið, með grösugar engjar og vel gróinn heiðarlönd þar sem skiptast á mýrar, flóar og mosavaxin holt. Kvistlendi er lítið og eiginlegir skógar engir. Mjög lítið er um rof, nema þá helst á söndunum norðan Hópsins. Uppblásturshætta er nánast enginn. Gróið land er um 70% af flatarmáli sveitarfélagsins.
Húnaþing vestra er opið fyrir norður-Íshafinu og mótast veðurfarið nokkuð af því. Norðanáttir bera svalt loft inn yfir landið og sunnan- og suðvestanáttir ná oft með úrkomu inn yfir svæðið. Veðurfarið er svalt og frekar þurt, vorkalt og síðgróið en oftast viðunandi sumartíð. Héraðið er yfirleitt frekar snjólétt. Úrkoma mælist í u.þ.b. 190 daga á ári, snjókomur þar af 80-90. Aðalsnjókomu- og vindáttir á Hvammstanga eru norðan- og norðaustanáttir. Alhvít jörð er í u.þ.b. 60 daga á ári og alauð í um 190 daga. Himinn er alskýjaður í u.þ.b. 230 daga á ári. Í maí til ágúst er hafgola áberandi. Sunnan- og suðaustan áttir 24% veðurathuguna, logn 14%, hvassviðri sjaldgjæft, að jafnaði einn stormdagur, 6 hvassviðri. Hafís hefur verið sjaldgæfur síðustu áratugi.
Skrifstofa sveitarfélagsins er til húsa að Klapparstíg 4 Hvammstanga þar hef ég skrifborðsaðstöðu, tölvu, síma og heilan helling af möppum og öðru slíku. Þar er einnig forstöðumaður tæknideildar með aðstöðu sína, sem og sveitarstjórinn. Skrifstofustjóri og þrír starfsmenn vinna einnig þar.

Áhaldahús sveitarfélagsins er í staðsett í leiguhúsnæði, Búlandi 3, Hvammstanga. Þar vinna þrír starfsmenn að jafnaði. Guðmundur Erlendsson, Ólafur Valdimarsson og Eggert Karlsson. Fjórði maðurinn Erlendur Guðmundsson var einnig þar við vinnu þegar ég hóf störf mín. Tækjakostur áhaldahússins er ágætur, JCB –traktorsgrafa, traktor.
Aðsetur vinnuskólans. Við Norðurbraut á Hvammstanga stendur gamalt timburhús. Í gegnum tíðina hefur það þjónað mörgum hlutverkum en upphaflega var það byggt undir starfsemi Rörasteypunnar. Um var að ræða litla steypustöð sem framleiddi einkum steinrör. Hún var sett á fór árið 1963 af gamla Hvammstangahrepp. Þá var seinna í þessu húsi áhaldahús sveitarfélagsins en þegar sú starfsemi flutti um set var húsið leigt út. Til stendur að rífa það, enda fyrir löngu búið að skipuleggja íbúðarbyggð á þessu svæði. Sumarið 2001 fékk vinnuskólinn að nota húsið undir starf sitt og nú var kominn röðin að mér að hafa þar bækistöð fyrir bæði fyrir vinnuskólann og garðyrkjuna almennt. Í þessu húsi fer einnig fram pappatæting á vegum Iðju. Íbúar koma með skriftstofupappír, bylgjupappa og dagblöð í bláa gáminn fyrir utan húsið. Á þriðjudögum sjá starfsmenn Iðju sjá um að taka úr gámnum, flokka og tæta hráefnið niður í 10-12 kg ruslapoka sem síðan eru seldir hestamönnum og öðrum sem þess óska. Húsið er orðið nokkuð hrörlegt enda búið að vera í niðunýslu síðustu ár.
Sorphirða og endurvinnsla. Verktakar sjá um sorphirður og sorpurðun. Hrannar B. Haraldsson sér um að safna rusli í sveitarfélaginu og hefur þenna bíl til þess starfs. Annar verktaki Ingólfur sér um rekstur urðunarsvæðisins sem er um 3 kílómetra fyrir norðan Hvammstanga, á Syðri-Kárastöðu.

Engin ummæli: