Í dag hófst uppsetning á nýjum leikkastala á lóð Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga. Gröftur fyrir mannvirkinu hófst um leið og búið var að mæla fyrir fótstykkjum þess.
Traktorsgrafa áhaldahússins tók í dag fyrstu skóflustunguna fyrir nýjum leikkastala á lóð grunnskólans á Hvammstanga.
Búið að grafa fyrir kastalanum, þjappa og setja hellur undir þar sem fótstykkin koma niður.Til fróðleiks má geta þess að skólahúsið varð fokhelt haustið 1960 en í ársbyrjun 1962 hófst kennsla í hinu nýja skólahúsi. Vinna við stækkun skólans, með tveggja hæða viðbyggingu, hófst 1982. Neðri hæðin var tekin í notkun í ársbyrjun 1986 en efri hæðin haustið 1989.
Þrátt fyrir að nú sé janúarmánuður er jörð þýð og veður gott til útiverka. Það er helst skammdegið sem tefur fyrir því mjög lítið birtir yfir á daginn. Þessa dagana er margt verið að sýsla í umhverfismálum, sem dæmi má nefna að einn starfsmaður áhaldahússins hefur unnið undanfarna daga við að tæta niður pappír í Vinnuskólahúsinu við Norðurbraut 14 á Hvammstanga. Pappatætingin er hluti af endurvinnslustefnu sveitarfélagsins en íbúum gefst kostur á að flokka blöð og pappír úr heimilissorpinu og skila í þar til gerðan gám við Vinnuskólahúsið.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli